Forsíða ViðUppskriftirMatseðill vikunnarSkráning á póstlista
Við

KRÚSKA – STEFNA OG MARKMIÐ - Berum ábyrgð á eigin heilsu.

Veitingastaðurinn Krúska er í eigu Valentínu Björnsdóttur og Karls Eríkssonar sem eiga einnig fyrirtækið Móður Náttúru.
"Það sem hvetur okkur áfram hjá Móður Náttúru er sú trú að matur eigi ekki einungis að vera hollur, hann þarf líka að vera bragðgóður"
Við leitum fanga í alþjóðaeldhúsinu þar sem heilsusamlegt hráefni eins og baunir, grænmeti og korn er mikið notað. Ferskar kryddjurtir og framandi krydd sjá svo um að töfra fram rétta bragðið.  Ofan á allt þetta leggjum við svo ómælda ást og umhyggju fyrir allri framleiðslunni.  Það gildir jafnt um að afhýða grænmeti, hræra í pottum, steikja buff, pakka eða keyra út.  Okkur þykir nefnilega vænt um fyrirtækið okkar og það sem við stöndum fyrir.  Að vera númer eitt hjá þeim sem kjósa að hugsa vel um heilsuna og njóta lífsins í leiðinni.
Krúska Suðurlandsbraut 12  108 Reykjavík.  Sími: 557-5880  
Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.