|
||||||||||||
7.9.2010 13:38
Spínatbaka Ingu. Létt og heilnæm Sendandi Ingibjörg Valsdóttir 200 gr hveiti. Við notum spelthveiti 100 gr smjörlíki. Við notum smjör. 1/2 dl. vatn smá salt og pipar. Hræra deigið vel saman og fletja út. Fallegt að setja í hringlaga form. Smyrjið formið með smá olíu. Baka í ofni í 10 min við 200 °c Fylling: 1 stk sæt kartafla. Skræld og skorin niður í litla bita. Má lika vera venjulegar blandað saman við gulrætur. 100 gr frosið spínat . þiðið vatnið kreist úr og hrært saman við 1 dós af rjómaosti ásamt tveimur eggjum og sett yfir kartöflurnar. Kryddað með salti, pipar og smá muskat. 1 dós af fetaosti sett yfir bökuna. Sett i ofninn og eldað á 200°C Ca 25 mín. Njótið vel. Til baka |
![]() |
|||||||||||
![]() |
||||||||||||
|
Krúska Suðurlandsbraut 12 108 Reykjavík. Sími: 557-5880
Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.
| ||||||||||||