Forsíða ViðUppskriftirMatseðill vikunnarSkráning á póstlista
8.2.2010 17:07
Aduzki grænmetissúpa Góð á köldum vetrardögum
Þessi súpa er protein rík og afar góð fyrir nýrun

hráefni.


1 laukur smátt skornin

½ grasker afhýtt og kjarnin hreinsaður .Skera niður i litla bita

2 gulrætur skornar i þunnar sneiðar

2 msk lífræn lífræn ólífuolía

1 tsk salt og 1 tsk pipar

2 tsk tímían

2 tsk Herbamare.Jurtakrydd.

fersk krydd eins og steinselja, kóríander, basil og 1 búnt af söxuðum vorlauk. Samanlagt handfylli og saxa niður og setja saman við rétt áður en hún er borðuð.

2 msk misó helst barley annars hvaða mísó sem til er

100 gr af maisbaunum. Skerið endilega fa ferskum stöngli.

200 gr af soðnum aduzki baunum. Sjóðið baunirnar eftir fyrirmælum á pakka.eða notið eina dós af aduzki baunum .

1 l af vatni og jafnvel má bæta ½ litra saman við allt eftir hversu þykk þú vilt hafa súpuna.

Setjið allt saman í pott nema mísó og fersku söxuðu jurtirnar.

Látið suðuna koma upp. Lækkið hitan og leyfið súpunni að malla í 30 mín. Slökkvið undir.

Hrærið mísóið saman við örlítið vatn þannig að úr verði þunnur vökví.og setjið út í súpuna. Passið að súpan sjóði ekki.

Kreistið saman við súpuna safa úr ferskum 5 cm engifer og blandið fersku jurtunum útí.

Smakkið hana til ef ykkur finnst vanta smá meira Herbamare.

Þessi súpa er góð með smá hrísgrjónum og eða fersku salati



 




Til baka
Krúska Suðurlandsbraut 12  108 Reykjavík.  Sími: 557-5880  
Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.