Forsíða ViðUppskriftirMatseðill vikunnarSkráning á póstlista
16.4.2009 10:08
Mangó-súkkulaði-engifer kaka Ekkert hveiti.
Dásamleg
  • 1 msk smjör
  • 2 tsk kakóduft
  • 1 plata af dökku súkkulaði smátt saxað
  • 2 egg
  • 2 msk hrásykur
  • 2 msk smátt saxaðar valhnetur
  • 1 mangó afhýddur og þegar búið er að hreinsa kjötið frá kjarnanum þá að smátt saxa hann (Það er líka handhægt að kaupa frosinn mangó og eiga í frysti)
  • 2 cm ferskur engifer rifin niður og safinn kreistur og settur yfir mángóávöxtinn.
  • Aðferð Hitið ofninn í 190°C . Setjið bökunnar pappír á botninn á hringlaga kökuformi Smyrjið hliðarnar á forminu. Þeytið vel saman eggin þar til verða létt og bætið þá sykri saman við . Haldið áfram að þeyta. Bræðið súkkulaðið við lágan hita í smjörinu og hræra kakóduftinu saman við. hellið hægt saman við eggjahræruna því næst koma saxaðar valhnetur. Blanda öllu saman og setja í kökuformið og inn í ofn. Baksturinn tekur ca 30 -40 mín eða þar til að hún stífnar. Kakan er mjúk í miðju . Kælið niður . Snúið kökunni við á bakkanum og saxið mangóávöxtum ofná og berið fram með þeyttum rjóma. Dásamleg



  • Til baka
    Krúska Suðurlandsbraut 12  108 Reykjavík.  Sími: 557-5880  
    Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.