16.4.2009 09:45
Kjúklingur í hrísgrjónum og ananas
ein kjúklingabringa á mann
3 msk soyja sósa
2 msk olía
3 hvítlauksgeirar smátt saxaðir
20 cm ferskur engifer afar smátt skorin
3 kjúklingabringur skornar í strimla
3bollar vatn
1 ½ bolli hýðishrísgrjón
Smá salt
ferskur lime safi
1 bolli ferskur ananas skorinn í smáa munnbita
2 stönglar vorlauk smátt saxaður
1 rauð paprika fræhreinsuð og skorin í flotta litla bita
Aðferð
Hristið saman olíu, hvítlauk, lífræna soyja sósu, engifer ásamt salti og pipar og hellið yfir kjúklinginn og marinerið í 30 mín
Skerið kjúklinginn í strimla og leggið á fat. og setjið sósuna yfir
Á meðan kjúklingurinn er að taka sig sjóðið hýðishrísgrjónin og setjið ½ msk olíu og smá salt saman við vatnið.
Leyfið suðunni að koma upp og sjóðið i fimm mínútur lækkið undir setjið lok á og hrísgrjónin fá að malla í 20-25 mín. Slökkvið undir og leyfið grjónunum að standa á hellunni og kólna
Hitið pönnuna og steikið kjúklingastrimlana á heitri olíunni ca 4 mín kryddið til með salt og pipar
Blandið saman kjúkling ,hrísgrjón og ananas og setjið sósuna saman við
og skreytið með kóríander
Sósan saman stendur af limesafa, soyjasósu, ólífuolíu, hvótlauk, rifnum engifersafa og smá salti
Til baka
|
 |