16.4.2009 09:39 Ofnbakaður kjúklingur að hætti spánverja 2-3 lærleggir per mann
þessi uppskrift miðast við 4 manns
Fullt af fersku rósmarin
5 hvítlauksrif í hýðinu
1 rófa gróflega skorinn
2kartöflur skornar i bita
3gulrætur skornar i grófa bita
2 perur skornar gróflega
smá sítrónusafi , salt og pipar
smá olía
Kjúklingurinn er lagður í mareneringu í ca 2 tíma . olía, hvítlaukur salt
og pipar ásamt fersku rósmarin
Grænmetið allt fallega skorið
Þegar kjúklingurinn er búin að draga í sig kryddin þá er gott að baka hann i ofni
Það sama gerið þið við grænmetið Setjið allt i góða skúffu stráið yfir grænmetið og perurnar olíu og þurrkrydd og fersk kryddum og sítrónusafa. bakið í ofni við 200°C í 30 mín
Hrærið í annað veifið .Takið’kjúklinginn út og hellið af honum safanum og blandið honum saman við grænmetið.
Ferskt salat og brauð er gott með þessum ásamt kryddsultu.