16.4.2009 09:31 Kjúklingaréttur frá N-Ítalíu2-3 kjúklingalæri per mann Hver elskar ekki ítalskt
2-3 kjúklingalæri per mann .
Grófur pipar og salt
3 msk olía
2 hvítlauksgeirar marðir og saxaðir
2 laukar smátt skorinn
2 kartöflur smátt skornar
1 rófur smátt skornar
Handfylli af söxuðum ólífum
Handfylli af sólþurrkuðum tómötum
2 msk saxað tímían
2 msk söxuð steinselja
2 msk saxað basil
1 msk sæt chilli sósa
1 krukka tómatasósa
Smá vatn og smá sítrónusafi.
Aðferð
Brúnaðu lærin báðum megin í olíu og kryddum . Á góðri pönnu steiktu
grænmetið og hvítlaukinn , kryddaðu til með salt og pipar.
Settu smá vatn svona eins og ½ bolla útí ásamt tómatsósunni og kjúklingalærum. lokið á og rétturinn fær að malla í 30 mín.
Þá koma ólífur og sólþurrkaðir tómatar og fersku kryddin , sítrónusafinn og sæta chilli sósan. Hrærið öllu vandlega saman og kryddið meira ef vantar. Rétturinn fær að taka sig og rétt undir lokin setur þú fersku fersku jurtinrnar
saman við.
Heimalagað ferskt hvítlauksbrauð og ferskt grænt salat er bara gott með þessum.