Forsíða ViðUppskriftirMatseðill vikunnarSkráning á póstlista
15.4.2009 10:39
Hjónabandsæla Tótu Sveins fyrir venjulegt köku form
Þessi kaka er alltaf á borðum í góðum veislum . Hún er æðisleg
  • 300 gr. spelthveiti fyrir venjulegt kökuform
  • 300 gr. tröllahafrar
  • 100 gr. hrásykur
  • 150 gr. smjör
  • 150 gr. sólblóma-repjuolíu lífræna
  • 1 tsk. vínsteinslyftiduft
  • 1/2 tsk. salt
  • 300 gr. góð sykurlaus sulta (t.d. bláberja)
  • Aðferð:
  • Öllu hráefninu(nema sultunni) er blandað vandlega saman með sleif þannig að úr verði þykkt deig. Þá er rúmlega helmingnum af deiginu þjappað vel í smurt eldfast form. Sultunni smurt þar ofan á og að síðustu er restinni af deiginu sáldrað yfir sultuna. Bakist í ofni á 170°C í 30 mín. Kakan er síðan látin jafna sig um stund áður en hún er skorin. Bragðast mjög vel hvort heldur með eða án rjóma.


    Til baka
  • Krúska Suðurlandsbraut 12  108 Reykjavík.  Sími: 557-5880  
    Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.