Forsíða ViðUppskriftirMatseðill vikunnarSkráning á póstlista
14.4.2009 14:11
Morgungrautur Gabríels þessi uppskrift kemur frá Eymundi úr Vallarnesi/Móðir jörð
Einfaldur og góður í tjald ferðalagið
  • 3 dl bankabygg
  • 9 dl vatn
  • 2 epli skorin í litla teninga
  • 1-2 dl rúsínur
  • 1 msk. kanill
  • 2 tsk. salt
  • 1-2 dl fræ eftir smekk, t.d. sólblómafræ og/eða graskersfræ.
  • (+ 2 tsk. hunang og 1 dl döðlur fyrir sælkerana)
  • Hráefnið er allt sett í pott t.d. að kvöldi og suðan látin koma vel upp, síðan er slökkt undir, lokið sett á pottinn og farið að sofa. Að morgni þarf bara að hita grautinn upp og borða t.d. með mjólk (en það er ekki síðra að borða hann kaldan) eða nota sem múslí á súrmjólkina. Grauturinn þolir vel geymslu í kæli svo tilvalið er að sjóða hann til nokkurra daga í einu.


    Til baka
  • Krúska Suðurlandsbraut 12  108 Reykjavík.  Sími: 557-5880  
    Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.