Forsíða ViðUppskriftirMatseðill vikunnarSkráning á póstlista
13.4.2009 14:17
Indverskur kjúklinga Masala
Gott með sætu rauðrófusalati
  • Reiknið með 1 stk kjúklingabringu per mann
  • 2 dós jógúrt hrein prófið lífræna jógúrtið
  • 1 1/2 tsk turmeric
  • 1 bolli smátt saxaður laukur
  • 1 tsk engifer duft
  • 1 tsk hvítlaukur
  • 2 tsk chilli duft
  • handfylli af ferskum söxuðum kóríander
  • ¼ bolli góð sólblóma eða repjuolía lífrænar
  • Salt til að krydda eftir þörfum
  • Til að draga fram enn betra bragð er gott að nota sítrónusafa 1 msk rétt undir lokin Aðferð Notið heilan kjukling eða kjúklingabringur og skerið kjuklinginn í litla bita Leggið í jógúrtið og salt og marinerið í 1 klst Létt steikið turmerikið í olíu og síðan kemur laukurinn og hann á að vera algjörlega mjúkur Hrærið saman engifer, hvítlauk og chilli 4 msk af vatni og setjið saman við Hrærið öllum kryddunum vel saman og kanski þarf að bæta örlitu vatni saman við þó að ekkert brenni Kjúklingurinn er næstur á pönnuna nú á hann að steikjast vel ígegn . Hristið pönnuna vel annað veifið þannig að öll krydd eru blönduð . Lækkið hitan og setjið lok yfir og leyfið matnum að malla örlitla stund á meðan þið búið til salatið. Gott að byrja á því að sjóða hýðishrísgjónin með smá salti og olíu Síðan að fara í að útbúa kjúklinginn eftir að hann er búin að marinerast. Rétt áður en hrisgrjónin eru borin fram er gott að setja saxaða steinselju saman við þau eru bragðgóð og falleg þannig. Auk þess er ánægjulegt að borða rauðrófusalat með þessum rétti . Rífið rófurnar niður og saxið steinselju saman við og gott era ð setja Mirin saman við það gerir rófurnar sætar á bragðið.


    Til baka
  • Krúska Suðurlandsbraut 12  108 Reykjavík.  Sími: 557-5880  
    Opið virka daga 11-20 laugardaga 11-15.